Skjóta fyrst og spyrja svo
Þetta segir Einar K Guðfinnsson í grein hér á Feyki.is þar sem birtast upplýsingar um niðurskurðaráformin á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Fram kemur í grein Einars að fjárlögin eru ákvörðuð þannig að ljóst er að þau munu hafa í för með sér það sem sérfræðingar Velferðarráðuneytisins telja „hæpinn“ niðurskurð. Sú minnkun skerðingar frá upphaflegu fjárlagafrumvarpinu duga bara til þess að koma í veg fyrir að stofnunin yrði neydd í það sem ráðuneytið sjálft kallar „ófæran“ niðurskurð.
-Ég lagði mjög mikla áherslu á þetta í fjárlagaumræðunni og undirstrikaði fáránleika þess að farið sé af stað með niðurskurðaráform, án þess að hugað sé að afleiðingunum fyrirfram. Og ekki er það síður mjög ámælisvert að áfram sé síðan haldið í ljósi þess að vitað er nú að þessi niðurskurður sem stjórnarliðar á Alþingi hafa ákvarðað leiði til „hæpins“ niðurskurðar, segir Einar.
„Staðan á Sauðárkróki núna er til marks um að vaðið hafði verið af stað með óhugsuð áform, sem ekki stóðust nokkra skoðun. Í fjárlagfrumvarpinu sem lagt var fram þann 1. október sl. var þannig gert ráð fyrir því að skera ætti niður á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki um tæpar 63 milljónir. Eftir að þessi niðurskurður hafði litið dagsins ljós voru sérfræðingar sendir út af örkinni af hálfu Velferðarráðuneytisins. Eðlilegast hefði auðvitað verið að setja af stað slíka vinnu fyrir fram og ákveða niðurskurðarkröfuna í ljósi efnislegrar skoðunar á starfsemi stofnunarinnar. Það var ekki gert. Menn kusu að skjóta fyrst og spyrja svo“, segir Einar í grein sinni sem hægt er að nálgast HÉR.