Skoða lífeðlisfræðileg viðbrögð skeiðhesta
feykir.is
Skagafjörður
10.10.2013
kl. 09.55
Á vef Hólaskóla segir frá því að undanfarna daga hafi Anna Jansson, prófessor við hestafræðideild, verið að vinna að því með nemendum á 3. ári til BS í reiðmennsku og reiðkennslu að skoða lífeðlisfræðileg viðbrögð skeiðhesta við þjálfun.
Hrossin hafa verið þjálfuð bæði á sléttlendi og upp brekkur, og einnig á öðrum gangtegundum. Nemendur hafa mælt mjólkursýruinnihald í blóði hrossanna, sem og hjartsláttinn hjá þeim.
Aðrir kennarar sem hafa komið að verkefninu eru þau Mette, Þorsteinn, og Guðrún.