Skóladagvistun ódýrust í Skagafirði
Í frétt á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar er vakin athygli á því, að þrátt fyrir að sveitarfélagið sé í hópi þeirra sveitarfélaga sem hækka leikskólagjöld hvað mest, eða um 8%, sé það eftir sem áður í hópi þeirra sveitarfélaga þar sem leikskólagjöld eru hvað lægst. Skóladagvistun er ódýrust í Skagafirði.
„Ástæður þessarar hækkunar eru tvíþættar. Annars vegar sú að leikskólagjöld höfðu ekki hækkað í tvö ár, eða frá því í janúar 2013. Engin hækkun varð á gjöldum á árinu 2014 eins og hjá flestum öðrum sveitarfélögum landsins. Við ákvörðun um hækkun gjalda var einnig litið til þeirra launahækkana sem orðið hafa á tímabilinu, en dæmi um launahækkanir á þessu tímabili eru allt frá rúmlega 9% og upp í um 20%,“ segir í fréttinni á vef sveitarfélagsins.
Þess er einnig getið að þegar skoðaður er heildarkostnaður fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat í skólum landsins, er Sveitarfélagið Skagafjörður með lægsta verðið, kr. 21.777 á mánuði, en hæsta verðið sem greitt er fyrir slíka þjónustu er kr. 33.964 á mánuði. Þetta kemur fram á vef ASÍ.