Skólasetningar grunnskólanna í Skagafirði
Skólasetning Varmahlíðarskóla verður miðvikudaginn 28. ágúst kl. 16:00. Nemendum og foreldrum þeirra er bent á að mæta sunnan við skólann, en þar verður stutt athöfn og á eftir verður boðið upp á kaffi og með því.
Grunnskólinn austan vatna verður settur fimmtudag 22. ágúst næstkomandi. Skólasetningar verða sem hér segir:
- Sólgarðaskóla kl. 9:00
- Grunnskólanum að Hólum kl. 11:00
- Grunnskólanum á Hofsósi kl. 13:00
Skólastjóri setur skólann á hverjum stað og fer yfir breytingar í stjórnun skólans og almennar upplýsingar um skólahald komandi skólaárs. Að því loknu fara nemendur í stofur ásamt sínum umsjónarkennara og fá afhentar stundatöflur. Foreldrar eru eindregið hvattir til að mæta með nemendum á skólasetningu. Skólabílar verða til taks á skólasetningu en foreldrar eru vinsamlegast beðnir að láta skólabílstjóra vita ef nemendur nýta ekki skólabíl.
Gert er ráð fyrir um klukkustunda dagskrá á hverjum stað en skólastarf hefst svo samkvæmt stundaskrá föstudag 23. ágúst. Skagafjörður.is segir frá þessu.
Líkt og Feykir.is sagði frá í gær hefur skólasetningu Árskóla á Sauðárkróki verið frestað til þriðjudagsins 27. ágúst vegna byggingaframkvæmda.
Þar eru foreldrar nýrra nemenda í 2.-10. bekk jafnframt minntir á að hafa samband við skólann sem fyrst og einnig eru þeir sem þurfa að nota þjónustu Árvistar minntir á að hafa samband við forstöðumann þar sem fyrst.