Slasaðist í flúðasiglingu

Þýsk ferðakona slasaðist í flúðasiglingu í Austari-Jökulsá í Skagafirði laust eftir hádegið á laugardaginn. Var þyrla Gæslunnar kölluð út til að flytja konuna á sjúkrahús í Reykjavík. Hún var með áverka á hálsi og hrygg.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Sauðárkróki voru fimm bátar í flúðasiglingu í ánni er slysið átti sér stað. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvernig það bar að. Konan var með meðvitund og mátt en mikla verki. Mbl.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir