Sláttur hófst fyrir viku í Húnaþingi vestra

Þrátt fyrir harðan vetur og kalin tún er sláttur óðum að hefjast á Norðurlandi vestra. Fyrsti sláttur sem fregnir hafa borist af í Húnaþingi vestra er á bænum Syðsta-Ósi í Miðfirði, en þar ku hafa verið slegin tún á föstudaginn fyrir viku síðan. Þykir það nokkuð snemmt miðað við tíðarfar undanfarinna mánaða. Um viku fyrr hófst sláttur í Skagafirði, m.a. á bænum Gili. Á Norðanátt.is er haft eftir Jóni Böðvarssyni, bónda á Syðsta-Ósi, að tún séu góð og sprettan sömuleiðis og nánast ekkert kal sé í túnum.

Fleiri fréttir