Slegið á létta strengi og gæðingskostir í hávegum hafðir
Skagfirðingar fagna sumri í Reiðhöllinni Svaðastöðum á morgun, laugardaginn 26. apríl, með sýningunni Tekið til kostanna, sem haldin er í þrettánda sinn. Dagskráin hefst kl. 13:00 á kennslusýningu reiðkennaraefna Háskólans á Hólum og samkvæmt fréttatilkynningu er gæðingafimi grunntónninn í sýningunni.
Í lokin fer fram keppni í gæðingafimi og þeir þrír, sem bestum árangri ná, keppa síðan til úrslita á kvöldsýningunni, sem hefst kl. 20:00. „Sýningargestir mega eiga von á fjölbreyttri og skemmtilegri sýningu þar sem slegið er á létta strengi en fagmennska og gæðingskostir líka í hávegum hafðir.“
Sjö afkvæmi Vilmundar frá Feti mæta í höllina, Björn og Arndís á Vatnsleysu koma með systkinin Hraunar og Heklu frá Vatnsleysu og frá Saurbæ mæta þrír stóðhestar. Knaparnir Elvar á Syðra-Skörðugili, Jói á Bessastöðum, Maggi á Íbishóli og Þór í Skriðu verða með afkvæmasýningu og ellismellirnir og snillingarnir Stebbi Friðgeirs og Dagur frá Strandarhöfði mæta í sérstaka heiðurssýningu.
„Síðast en ekki síst má nefna stórgæðingana Spes frá Vatnsleysu, Narra frá Vestri-Leirárgörðum og Trymbil frá Stóra-Ási, sem öll hafa hlotið 9 fyrir tölt í kynbótadómi og Trymbill skartar 10 fyrir skeið; geri aðrir betur,“ segir loks í tilkynningunni.