Smali og skeið í Húnvetnsku liðakeppninni um helgina
Næsta mót í Húnvetnsku liðakeppninni er smali og skeið og verður haldið í Þytsheimum laugardaginn 23. febrúar nk. Keppni hefst kl. 13.00 og er aðgangseyrir kr. 500 fyrir 13 ára og eldri. -Þessi keppni er mjög skemmtileg og spennandi. Þarna er keppt í hraða, kjarki, fimi og snerpu, segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Þyt.
Skráning er á netfang kolbruni@simnet.is fyrir miðnætti miðvikudagskvöld 20. febrúar. Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, flokkur, hestur, IS númer, litur, aldur og hvaða liði keppandinn er í. Skráningargjöld eru 1.500 kr í smala fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga. Skráningargjöld í skeið eru 1.000 kr. Greiða þarf skráningargjöld áður en mót hefst inná reikning Þyts 0159-15-200343 kt. 550180-0499.
Hér er smalabrautin sem sett verður upp í Þytsheimum nk. laugardag.
Keppt verður í unglingaflokki (fædd 1996 og seinna), 3. flokki, 2. flokki og 1. flokki. Í 1. og 2. flokki fá 9 hestar að fara brautina aftur en 5 hestar fara brautina aftur í úrslitum í 3. flokki og unglingaflokki.
Skeið:
Í skeiði má hver knapi keppa á eins mörgum hrossum og hann vill en getur aðeins fengið stig fyrir einn hest eins og í öðrum greinum. Þessi keppni gefur mismunandi stig í liðakeppninni og einstaklingskeppninni.
Bæjarkeppnin er eins út allar keppnina, stigin eru frá 9 og niður í 1 í öllum flokkum.