Söfnuðu fyrir iPad handa bekkjarsystur
Nemendur í 4. SG og bekkjarsystkini Selmu Bjarkar Þórudóttur, langveikrar stúlku, héldu prúttmarkað í Skagfirðingabúð í gær og freistuðu þess að safna pening til kaupa á Ipad spjaldtölvu handa henni. Vel tókst til með markaðinn en eftir aðeins 20 mínútur var búið að selja vörur fyrir rúm 30 þúsund og þegar yfir lauk safnaðist alls kr. 103.856.-
Að sögn Sigrúnar Heiðu Pétursdóttur voru foreldrar bekkjarsystkinanna harla ánægðir með móttökurnar og að það hafi náðst að safna í Ipadinn og hulstur utan um hann.
-Við erum í skýjunum yfir hvað þetta litla samfélag okkar getur staðið vel við bakið á fólki þegar eitthvað bjátar á, segir Sigrún Heiða sem tók meðfylgjandi myndir.
Samnemendur Selmu í Árskóla og foreldrar þeirra stofnuðu söfnunarreikning fyrr á árinu og geta þeir sem vilja styðja við bakið á Selmu og foreldrum hennar lagt inn á hann:
0161-15-380360
Kt: 140479-5789