Söfnun fyrir Aron og fjölskyldu
Aron Vignir Sveinsson frá Hvammstanga slasaðist í fjórhjólaslysi í Grafarvogi þann 18. apríl er útskrifaður af gjörgæslu. Aron og kærasta hans eiga von á barni og æskuvinir hans ákveðið að reyna að létta undir litlu fjölskyldunni með því að opna styrktarreikning.
Í frétt á Vísi.is segir að Aron hafi slasast alvarlega á hægri fæti, hálsi og höfði. Móðir Arons, Hrafnhildur Katrín Pétursdóttir, sagði í samtali við Vísi að því miður hafi ekki verið hægt að bjarga fætinum en hann var tekinn af við miðjan sköflung. Aron og kærastan hans, Harpa Harðardóttir, eiga von á barni á næstu dögum.
Þeir sem vilja leggja eitthvað af mörkum geta lagt inn á reikning 0153-26-065003, kt. 230190-3139. Margt smátt gerir eitt stórt.