Sögustund Á Sturlungaslóð

Samlestur vetrarins úr sögum Sturlungu hefst sunnudaginn 3. nóvember kl. 10:30 í Áskaffi. Lesið verður fjóra sunnudaga og að þessu sinni er það Þorgils saga og Hafliða. Allir eru velkomnir og engrar kunnáttu í Sturlungu er þörf til að vera með.

Það eru Félagar á Sturlungaslóð sem standa fyrir samlestrinum, og er hann árviss hluti af starfsemi félagsins.

Fleiri fréttir