Sólstöðuganga í Glerhallarvík

Ferðafélag Skagfirðinga efnir til gönguferðar út í Glerhallarvík föstudaginn 21. júní n.k. en lagt verður af stað frá Reykjum á Reykjaströnd kl. 20:00. Út að Reykjum kemur fólk á sínum einkabílum, segir í tilkynningu frá Ferðafélaginu. Grettiskaffi verður opið um kvöldið og þar má kaupa kaffi og léttar veitingar. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir með.

Göngumenn skulu vera á góðum skóm en gangan er þó létt en á köflum um grýtta fjöru að fara. Fararstjóri verður Hjalti Pálsson von Hof.

Fleiri fréttir