Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra

Grunnskóli Húnaþings vestra heldur söngvarakeppni nk. föstudag, þann 18. janúar, í Félagsheimilinu á  Hvammstanga. Að keppninni lokinni veður haldið ball þar sem Dj. Óli Geir þeytir skífum til kl. 01:00. „Nemendafélagið mun stýra dansleikjum fyrir yngstu nemendurna í upphafi diskóteks,“ segir á heimasíðu skólans.

Sjoppa á staðnum, gos, samlokur og slikkerí, opin kl. 18:30 – 01:00. Miðaverð er 1500 kr og er frítt fyrir börn á leikskólaaldri. Húsið opnar kl. 18:30 og keppnin hefst kl. 19:00

 „Athugið að nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra sem greiddu aðgangseyri að árshátíð þurfa ekki að greiða á söngvarakeppnina,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir