Söngvarakeppni Húnaþings vestra 2013

Söngvarakeppni Húnaþings vestra 2013 verður haldin laugardaginn 8. júní nk. í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

Húsið opnar kl. 20:00 og mun skemmtunin hefjast hálftíma síðar. Söngvarakeppnin er frábær skemmtun í alla staði sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Birgir Sævars og hljómsveit munu sjá um að trylla lýðinn og halda uppi stuði á ballinu að keppni lokinni.

Aldurstakmark er 16 ár.

Aðgangseyrir 3500 kr.

ATH. enginn posi við dyrnar.

Hægt er að panta miða á skemmtunina hjá Huldu í síma 616-2201. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir