Söngvarakeppni Húnaþings vestra 2014 á laugardaginn

Söngvarakeppni Húnaþings vestra 2014 fer fram í félagsheimilinu á Hvammstanga nk. laugardagskvöld, þann 5. apríl. Húsið opnar kl. 20:00 og skemmtunin hefst kl. 20:30. Samkvæmt Norðanátt.is er góð þátttaka í ár, alls fjórtán atriði, allt frá einstaklingum og upp í hópa.

„Þema keppninnar að þessu sinni er frjáls og til gamans má geta að í fjórum atriðum er frumsaminn texti,“ segir á Norðanátt. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bestu sviðsframkomuna og bestu búningana.

Um undirleik sjá þeir Daníel Geir Sigurðsson, Guðmundur Hólmar Jónsson, Kristinn Arnar Benjamínsson og Valdimar Gunnlaugsson. Að lokinni söngvarakeppninni mun hljómsveitin Sólon sjá um að trylla lýðinn.

Aldurstakmark er 16 ár og aðgangseyrir 3.500 kr. Þess má geta að enginn posi verður við dyrnar.

Styrktaraðilar: Menningarráð Norðurlands vestra, Húnaþing vestra, Tengill ehf., Kaupfélag Vestur Húnvetninga, Landsbankinn Hvammstanga.

 

Fleiri fréttir