Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra á morgun

Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra verður haldin á morgun, laugardaginn 16. janúar, og fer hún fram í Félagsheimili Hvammstanga. Húsið opnar kl. 19:30 og keppnin hefst kl. 20:00. Áætlað er að keppninni ljúki um kl. 22:00.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. en frítt er fyrir börn undir grunnskólaaldri. Eins og undanfarin ár greiða nemendur sama aðgang og fullorðnir. Nemendur í 10. bekk verða með sjoppu á staðnum og verður hún opin frá kl. 19:30 og í hléi.