Staða á kaldavatnsforða góð

Eins og Skagfirðingar hafa fundið fyrir hefur mikil þurrkatíð verið undarnfarin misseri og getur það haft slæm áhrif á kaldavatnsforðan. Þrátt fyrir rigningarleysið er staðan sem betur fer góð að sögn starfsmanns Skagafjarðarveitu. Staðan var óvenju slæm í fyrrasumar en þar sem það hefur verið kalt á nóttunni bráðnar snjór í fjöllum hægar og seitlar því rólega í kaldavatnslindirnar. Ekki hefur þurft að grípa til sjóveitunnar sem tekin var í gagnið í vetur fyrir Rækjuvinnsluna, sem allajafna þarf gríðarmikið vatn fyrir starfsemi sína, en sjóveitan er einskonar varaskeifa Skagafjarðarveitu ef vatnsforðinn verður lítill.

Fleiri fréttir