Starfsemi Grettisbóls eflist og dafnar

Það var mikið umleikis í Grettisbóli á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í sumar. Nokkur fjölgun var á gestakomum, en meðal þess sem gestir Grettisbóls nýta sér eru Sveitarmarkaðurinn Spes, víkingaleikir og víkinganámskeið. Þá var nokkuð um framkvæmdir á svæðinu og hin árlega Grettishátíð var á sínum stað.

Farið var af stað með framkvæmdir á svæðinu í sumar og nú er komin góð salernisaðstaða í Grettisbóli sem þjónar einnig fötluðum og er það mikil bót fyrir þá gesti sem koma á svæðið. Þá er unnið að því að bæta leiktækjum á útisvæðið og gera heimsóknina þangað áhugaverðari.

Grettistak ses er menningar og fræðslustofnun. Markmið hennar er að nýta menningararf og sögu Húnaþings vestra og er sérstök áhersla lögð á að vinna með hetjuna Gretti Ásmundarson frá Bjargi í Miðfirði, en frá ævi hans segir í Grettis sögu.

Tilgangur stofnunarinnar er að gera byggja upp menningarsetur og efla menningartengda ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra og bæta ímynd svæðisins.

Fleiri fréttir