Steinull hf. framúrskarandi fyrirtæki

Nýlega birti Creditinfo lista yfir fyrirtæki sem þau flokka sem framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi. Eftir ítarlega greiningu  sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins kemur í ljós að Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki er meðal þeirra.

Á heimasíðu Creditinfo segir að af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 245 þeirra uppfylla þau skilyrði sem félagið setur til að fá viðurkenningu sem  framúrskarandi fyrirtæki. Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi.

Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi.

Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:

  •  •Að hafa skilað ársreikningum til RSK 2008 til 2010
  • •Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
  • •Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
  • •Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
  • •Eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2008 - 2010
  • •Að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2008 til 2010
  • •Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
  • •Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo

 

Fleiri fréttir