Stelpurnar í 8. flokki söfnuðu fyrir upphitunargöllum

Stelpurnar sem æfa körfubolta í 8. flokki Tindastóls söfnuðu sér fyrir glæsilegum upphitunargöllum og bolum á dögunum. Þær söfnuðu auglýsingum frá fyrirtækjum í bænum og tókst á tveimur dögum að safna nógu miklum fjármunum til þess að fá galla á sig og þjálfara sinn.

Stelpurnar léku fjóra leiki um helgina í DHL-höllinni í Reykjavík gegn Keflavík, Grindavík, Njarðvík og KR en þurftu því miður að láta í minni pokann í öllum leikjunum.

Stelpurnar vilja koma þakklæti til fyrirtækjanna sem styrktu þær í gallakaupunum. Mynd: Hjalti Árna.

Eins og sést á myndunum eru gallarnir ansi flottir og fjöldi fyrirtækja sem skráð eru á bakið á göllunum.

 

 

Fleiri fréttir