Stemningin í Húnvetnsku liðakeppninni í hámarki

Húnvetnska liðakeppnin heldur áfram og stemningin í hámarki eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Næsta mót verður haldið í Þytsheimum á Hvammstanga föstudaginn 15. mars nk. Keppt verður í fimmgangi í 1. og 2. flokki og tölti T7 í 3. flokki og í tölti T3 í unglingaflokki, fædd 1996 og seinna (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt).

Á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts kemur fram að skráning verði til miðnættis í kvöld, þriðjudaginn 12. mars og fer fram í gegnum Kollu á netfangið kolbruni@simnet.is. Senda þarf kennitölu knapa, IS númer hests, lið, bæjarlið (ef við á) og upp á hvora hönd skal riðið. Nánari upplýsingar um framkvæmd mótsins má finna á heimasíðu Þyts.

Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

http://youtu.be/0CUSwUXl1wY

Fleiri fréttir