Stóðrétt í Víðidalstungurétt á laugardaginn

Víðidalstungurétt í Húnaþingi vestra er ein af stærri stóðréttum landsins. Réttin hefur eins og aðrar slíkar töluvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn, en þangað koma um 700 hross og einhver hundruð fólks til að taka þátt eða horfa á.

Feykir hafði samband við Ingvar Jón Jóhannsson bónda í Víðidalstungu 2 í Húnaþingi vestra og formann hrossaræktarfélags Þorkelshólshrepps, sem hefur veg og vanda af markaðssetningu réttarinnar og tengdra viðburða í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á svæðinu.

Ingvar segir að Víðidalstungurétt sé klárlega ein af stærri stóðréttum landsins. Talið er að fleiri hross komi þar til réttar en Laufskálarétt í Skagafirði, sem þó er öllu þekktari. Að þessu sinni á Ingvar von á um 6-700 hrossum til réttar og kom þau úr Þorkelshólshrepp hinum forna, það er Víðidal og Fitjárdal. Vonast hann eftir öðrum eins og fjölda fólks, enda komi alltaf mikið af aðkomufólki í réttina.

Íshestar hafa lengi staðið fyrir skipulögðum hestaferðum í réttina og í ár verður engin undantekning þar á. Ferðafólkið ríður þá áleiðis í veg fyrir hópinn sem kemur niður með stóðið. „Í smöluninni eru túristar sem taka ekki beint þátt, þeir ríða á móti. Frá íshestum er margt, þeir ríða hérna fram að austan sem við köllum og hafa oft farið fram á Fosshól. Þannig að þeir horfa á safnið koma og reka með niður. Svo eru fleiri, Haukur Suska í Vatnsdalnum hefur komið með hóp. Svo er hérna að vestanverðu, þeir sem koma niður hjá Króki og niður í Valdarásrétt, þá hefur verið hópur sem sameinast okkur við Valdarásréttina á vegum Ferðaþjónustunnar á Gauksmýri,“ segir Ingvar og bætir við að þegar flest hefur verið hafi verið taldir yfir 200 manns á hestum

Í réttinni fer auk hefðbundinna réttarstarfa fram uppboð á völdum hrossum. Þá er boðið upp á réttarkaffi að hætti kvenfélagsins Freyju og miða í kaffið fylgir happdrættismiði sem dregið er úr í lok dags. Fyrsti vinningur er folald svo það er til mikils að vinna. Að kvöldi réttardagsins stendur kvenfélagið Freyja fyrir dansleik í félagsheimilinu Víðihlíð og leikur Geirmundur fyrir dansi eins og mörg undanfarin ár.

Ingvar segir smölunina aðeins taka sem nemur hefðbundnum vinnudegi, þar sem búið sé að reka hrossin niður að safngirðingu í fyrstu fjársmölun. Væri verið að smala alla heiðina beint til réttar tæki það nokkra daga. Sjálfur hefur Ingvar átt hross í stóðréttunum síðan um 1985, hjá Teiti heitnum Eggertssyni og Maríu Pétursdóttur í Víðidalstungu. Hann tók svo við búi í Víðidalstungu 2 árið 1996 og býr þar með sauðfé og nokkuð af hrossum, ásamt Árborgu Ragnarsdóttur. Ingvar var ekki farinn að gá til veðurs þegar blaðamaður hafði samband, enda rúm vika í réttina ennþá, en taldi líklegt að það yrði sól og blíða í Víðidal að vanda.

Fleiri fréttir