Stólarnir fengu slæma útreið á Akureyrarvelli

Tindastólsmenn heimsóttu Akureyri í gær en þar var leikið við lið KA við ágætar aðstæður. Bæði liðin voru fyrir leikinn nokkuð örugg með sæti sín í 1. deild en KA menn voru engu að síður tveimur sætum fyrir neðan Stólana. Þegar upp var staðið höfðu lærisveinar Bjarna Jó í KA unnið sanngjarnan, en þó helst til of stóran, 5-1 sigur.

Jafnræði var með liðunum til að byrja með og vildu Tindastólsmenn fá víti snemma leiks þegar brotið var á Bödda. KA menn komust yfir á 18. mínútu þegar Gunnar Valur Gunnarsson skoraði ágætt mark. KA bætti um betur átta mínútum síðar þegar Gunnar Örvar Stefánsson klobbaði Furness í markinu eftir að hafa fengið laglega stungusendingu inn fyrir vörn Stólanna. Staðan 2-0 í hálfleik.

Heimamenn létu kné fylgja kviði í upphafi síðari hálfleik og gerðu vonir Tindastólsmanna um endurkomu að engu. Á 48. mínútu skoraði Ævar Ingi Jóhannesson eftir mistök í vörn Tindastóls og hann bætti öðru marki við fjórum mínútum síðar með góðu skoti eftir baráttu á vítateig Tindastóls. Fimmta mark KA gerði síðan Brian Gilmour úr aukaspyrnu á 58. mínútu, þrumuskot í markvinkilinn. Þegar þarna var komið sögu höfðu KA menn átt fimm skot á mark og skorað úr þeim öllum. Eftir þetta róaðist leikurinn nokkuð en það voru þó Stólarnir sem áttu síðasta orðið en Jordan Branco gerði gott mark eftir að hafa rennt sér framhjá nokkrum KA mönnum.

Það var að sjálfsögðu skarð fyrir skildi að lið Tindastóls er nú án þeirra tveggja miðjumanna sem hafa verið hvað mest áberandi í spili liðsins í sumar, þeirra Atla Arnarsonar og Rodrigo Morin, og þarf Donni þjálfari að púsla saman liðinu fyrir næsta leik sem verður laugardaginn 7. september en þá mætir Óli Þórðar með Víkingana sína á Krókinn.

Lið Tindastóls fór með tapinu í gær úr sjöunda sæti í það níunda og er með 25 stig. Lið Þróttar gerði sér lítið fyrir á sama tíma og sigraði Fjölni og er sem stendur með 20 stig en KF er með 15 stig en á einn leik inni, eiga að mæta Völsungi á Ólafsfirði í kvöld. Völsungur er enn með 2 stig og að sjálfsögðu löngu fallinn.

Fleiri fréttir