Stólarnir góðir með sópinn

Á Vísi.is er sagt frá því að forráðamenn Víkings í Reykjavík séu hæstánægðir með umgengni Tindastólsmanna eftir leik þeirra í bikarnum í gær. Þeir hafi gengið vel frá eftir sig og sópuðu gólfið í búningsklefanum sínum á leiðinni út.

„Við leggjum upp með góða siði hvert sem við förum. Við erum ekki bara upp góða knattspyrnumenn heldur góða drengi líka,“ sagði Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Tindastóls í viðtali á Vísi.is. „Hver temur sér góða siði,“ sagði Donni og bætir við að það hafi ekkert sérstakt komið til. Hann vilji einfaldlega að sínir menn gangi snyrtilega um.

Það er spurning hvort Tindastóll ætli sér að vera með snyrtilegustu liðin á Íslandi þetta sumarið því kvennaliðið fékk hrós fyrir samskonar frammistöðu í Árbænum er þær öttu kappi við Fylki í Borgunarbikarnum. Sjá HÉR

Fleiri fréttir