Stólarnir lögðu Þór Þorlákshöfn
Í gær mættust lið Þórs frá Þorlákshöfn og Tindastóls í Drekabæli þeirra sunnanmanna en fyrirfram var búist við ójöfnum leik þrátt fyrir stíganda í leik Stólanna undanfarið. Þórsarar hafa velgt öllum stærstu liðum deildarinnar undir uggum, og jafnvel sigrað þau sem tróna á toppnum.
Á Karfan.is er farið yfir leikinn þar sem segir að Stólarnir hafi byrjað mun betur í leiknum og virtust grimmari og hungraðri í sigur. Vörn heimamanna var ótraust og áttu leikmenn Tindastóls auðvelt með að skora þau stig sem þeir þurftu, og þó sérstaklega Þröstur Leó , sem átti úrvals leik. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 12-18 Stólunum í vil. Leikurinn endaði með sigri Tindastóls 74-78 og segir á Karfan.is það hafa verið sanngjörn úrslit.
Þröstur Leó Jóhannsson átti stórleik í gær skoraði 18 stig og tók 5 fráköst, Maurice Miller 18/11 fráköst/7 stoðsendingar, Svavar Atli Birgisson 14/7 fráköst, Curtis Allen 9, Helgi Freyr Margeirsson 7/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 6/5 fráköst, Friðrik Hreinsson 3, Hreinn Gunnar Birgisson 3.
Sjá umfjöllun um leikinn HÉR