Stólarnir náðu sér ekki á strik en enduðu í 9. sæti í 1. deild
Tindastóll mætti liði BÍ/Bolungarvíkur í síðustu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu sem fram fór í dag. Gestirnir áttu enn veika von um að spila í efstu deild að ári og voru mun ákveðnari og beittari en heimamenn enda fór svo að þeir unnu afar sanngjarnan 2-0 sigur gegn frekar áhugalausum Tindastólsmönnum.
Það varð strax ljóst að BÍB ætlaði sér sigur í leiknum og náðu strax valdi á miðjunni. Inni á miðjunni hjá Stólunum voru Árni Ödda, Chris Harrington sem virkar afar takmarkaður leikmaður og Konni Donnabróðir sem er 18 ára en bráðefnilegur, með fína sendingagetu og sýndi á köflum lipra takta. Nigel Quashie og félagar voru hinsvegar sterkari og komu í veg fyrir að Stólarnir næðu einhverjum takti í spil sitt. Jordan Branco sýndi lipra takta á hægri kantinum hjá Stólunum en oftar en ekki ætlaði hann sér um of og tapaði boltanum. Vörn Stólanna stóð fyrir sínu en bestur heimamanna var engu að síður Seb Furness í markinu sem varði oft á tíðum frábærlega eins og oft áður í sumar.
Fyrsta mark leiksins kom á 13. mínútu eftir að Stólarnir gáfu hornspyrnu. Vinstri bakvörður BÍB, Hafsteinn Rúnar Helgason, er afar flinkur spyrnumaður og hann smellti hornspyrnunni beint á hausinn á Mbang Ondo sem hamraði boltann í markið. Stuttu síðar bjargaði Björn Anton vasklega með því að fórna höfðinu (nánast) fyrir þrumuskot rétt utan markteigs og þurfti smá tíma til að hrista höggið af sér. Stólarnir sköpuðu lítið í fyrri hálfleik en þó fékk Chris Tsonis dauðafæri en brást bogalistin.
Gestirnir héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og lá við að áhorfendur væru flestir komnir með hálsríg því boltinn var meira og minna á vallarhelmingi heimamanna sem vörðu norðurmarkið. Þegar leið á hálfleikinn náðu Stólarnir að vinna eina og eina hornspyrnu og upp úr einni slíkri sló markvörður BÍB, Alejandro Munoz, boltann frá markinu, gestirnir brunuðu upp völlinn og Theo Furness komst inn á vítateig Stólanna og gerðist svo djarfur að skora hjá stóra bróðir sínum í marki Tindastóls. Staðan orðin 0-2 á 71, mínútu og eftir þetta drógu gestirnir sig aðeins aftar og Tindastólsmenn fengu að hafa boltann meira það sem eftir lifði leiks. Þrátt fyrir örugga forystu létu Djúpmenn dómarann, sem annars dæmdi leikinn vel, fara í sínar fínustu taugar og aukaspyrna sem hann dæmdi rétt fyrir framan varamannabekk gestanna í uppbótartíma varð til þess að Hafsteinn Rúnar fékk að líta sitt annað gula spjald og þjálfari liðsins, Jörundur Áki, fékk tvö gul fyrir mótmæli. – Þetta var nú reyndar nánast það eina sem gladdi stuðningsmenn Stólanna meðan á leik stóð.
Það voru Fjölnir og Reykjavíkur-Víkingar sem enduðu í tveimur efstu sætunum í 1. deild í ár og leika því í Pepsi-deildinni næsta sumar. Akurnesingar fá að taka þátt í hinni skemmtilegu 1. deild og sennilegast er að annað hvort Ólafsvíkur-Víkingar eða Þór Akureyri fylgi þeim niður en í stað Völsungs og KF sem féllu úr 1. deild koma lið HK úr Kópavogi og KV úr Vesturbænum.
Lið Tindastóls endaði í 9. sæti í 1. deildinni sem er betri árangur en liðinu hafði verið spáð fyrir tímabilið. Líkt og í fyrra þá voru ágætir erlendir leikmenn fengnir til að styrkja hópinn og sömuleiðis var það sterkur leikur að fá Elvar Sig að láni frá Breiðablik. En það kvarnaðist talsvert úr hópnum vegna leikmanna sem fóru og þeir sem komu í staðinn reyndust ekki jafn liðtækir. Þá settu meiðsli og leikbönn strik í reikninginn undir það síðasta en síðustu fjórir leikir tímabilsins töpuðust allir. Lið Tindastóls var oft á tíðum að sýna góðan fótbolta í sumar og gaman að sjá til liðsins.