Stolið frá sýslumanni

Sunnudaginn 23.febrúar er komið að næsta erindi í fyrirlestraröð Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna. Erindið flytur Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur í Safnaðarheimili Hvammstangakirkju og hefst það kl. 14.

Á jólaföstunni árið 1835 varð uppi fótur og fit á heimili Björns Blöndals sýslumanns Húnvetninga í Hvammi í Vatnsdal þegar upp komst um margvíslegan þjófnað vinnufólksins á bænum. Málaferlin í kjölfarið veita merkilega innsýn í líf og kjör almennings í Húnaþingi á öndverðri 19. öld. Í erindinu verður greint frá þessu máli og þeim manneskjum sem þar komu við sögu eins og það birtist í dómsskjölum og öðrum samtímaheimildum. Um leið verður reynt að varpa ljósi á daglegt líf þeirra, stöðu vinnuhjúa í íslensku samfélagi og þær leiðir sem þau gátu nýtt sér til þess að andæfa valdi yfirboðara sinna og reyna að lifa með reisn þrátt fyrir fátækt sína og undirsetta stöðu í þjóðfélaginu.

Vilhelm Vilhelmsson er fæddur og uppalinn á Hvammstanga. Hann stundar nú doktorsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands og fjallar rannsókn hans um vald og andóf í íslensku samfélagi á 19. öld.

Aðgangur er ókeypis á fyrirlesturinn og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Hægt verður að kaupa kaffi og kleinur á staðnum og Ritið, tímarit Hugvísindastofnunnar Háskóla Íslands en í því er nýleg grein eftir Vilhelm. Einnig verður hægt að kaupa tímaritið Sögu með grein um Natansmálið. Vert er að geta þess að fyrirlestrar Byggðasafnsins hafa verið feykilega vel sóttir og eru þeir augljóslega kærkomin viðbót við menningarlífið á Norðurlandi vestra.

 

 

 

 

 

 

 

Fleiri fréttir