Stopp nú stjórnvöld
Árið 2000 var tekin í notkun endurbætt aðstaða við Heilbrigðisstofnunina Sauðárkróki (HS) til endurhæfingar m.a. glæsileg sundlaug sem fjármögnuð var að nokkru leyti af gjafafé frá félögum og einstaklingum auk framlaga frá ríki og Sveitarfélaginu Skagafirði. Guðrún Sighvatsdóttir er ein þeirra fjölmörgu sem hafa notið góðs af góðu starfi endurhæfingardeildar HS á Sauðárkróki og þakkar henni það að hún er vinnufær í dag og borgar þar með sína skatta.
„Ef svo ólíklega myndi vilja til að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra lesi þessa grein þá vil ég að það komi fram að ég geri mér grein fyrir því að hér varð hrun, en ráðherra á það til að svara mönnum ef þessi mál eru rædd, með þeirri spurningu hvort menn viti ekki að hér hafi orðið hrun“ segir Guðrún í aðsendri grein hér á Feyki.
Guðrún var meðal þeirra sem voru í viðtali í Feykir-TV þegar fjallað var um endurhæfingadeild HS