Stóraukinn opnunartími og aðsókn
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
14.04.2015
kl. 11.10
Selasetur Íslands hefur stóraukið opnunartíma setursins í apríl- og maímánuði. Virðist það hafa mælst fyrir þar sem þegar hafa komið fleiri gestir í aprílmánuði en allan aprílmánuð í fyrra.
Á Facebook-síðu setursins kemur fram að þessi aukni opnunartími er tilkominn vegna stóraukinnar aðsóknar. Í apríl er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 12:00 til kl. 15:00. Í maí verður svo opið alla daga frá kl. 09:00 til kl. 16:00 en undanfarið ár hefur verði lokað um helgar fyrri hluta maímánaðar.