Stórleikur í Síkinu í kvöld

Tindastólsmenn lofa stórleik í kvöld þegar Skagamenn koma í heimsókn í Skagafjörðinn í fyrstu deildinni í körfubolta. Á heimasíðu félagsins segir að um sannkallaðan toppslag verði að ræða en Skagamenn hafa aðeins tapað einum leik í vetur og eru með stigahæsta mann deildarinnar innan sinnar raða og Tindastólsmenn hafa landað sigri í öllum sínum leikjum.

ÍA tapaði fyrir Þór á Akureyri með tveimur stigum en Þórsarar tróna taplausir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eða 12 stig eftir sex leiki. Stólarnir eru einnig taplausir en hafa leikið einum leik færra en Akureyringar en með sigri í kvöld skjótast þeir upp fyrir þá með betra markahlutfall.

„Það er því full ástæða til að mæta og hvetja strákana til sigurs. Koma svo allir sem einn og mæta og búa til frábæra stemmingu fyrir strákana og sýnum að við stöndum þétt við bakið á liðinu. ÁFRAM TINDASTÓLL,“ segir á Tindastóll.is.

Fleiri fréttir