Stórtónleikar á Hvammstanga

Harmóníkukvintettinn í Reykjavík heldur stórtónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga á Sjómannadaginn 2. júní nk. Meðlimir kvintettsins leika bæði einleiks- og samleiksverk, létt og skemmtileg við allra hæfi, en þeir eru nú að útskrifast hver af öðrum með framhaldspróf í harmóníkuleik. Kennari þeirra hefur verið Guðmundur Samúelsson.

Í fréttatilkynningu frá Slysavarnardeildinni Káraborg segir að hér sé einstakt tækifæri sem enginn harmonikku- og tónlistarunnandi megi missa af og eru menn hvattir til að koma og njóta tónlistar sem leikin er á þetta frábæra hljóðfæri.

Fleiri fréttir