Stuðningsmenn Stólanna hittast á Mælifelli

Tindastólsmenn taka rútuna til kostanna í dag þegar þeir bruna suður á Selfoss til að etja kappi við lið FSu í 1. deildinni í körfubolta. Leikurinn hefst kl. 19:15 og að sjálfsögðu er hann sýndur á TindastóllTV.

Stuðningsmenn Stólanna, sem ekki eiga heimangegnt út fyrir naflann en vilja aðstoð við að fylgjast með leiknum, geta horft á leikinn Mælifelli og slafrað í sig pizzum af hlaðborði fyrir kr. 1500.

Fleiri fréttir