Stúlknalaus Sólgarðaskóli
Skemmtilegt viðtal við strákana í Sólgarðaskóla í Landanum sl. sunnudag vakti athygli, en þar kom fram að umræddir strákar vita fátt skemmtilegra en að ærslast í sundlauginni á staðnum og hafa safnað fyrir stökkbretti við laugina. Hitt hefur einnig vakið athygli að engar stúlkur voru í Sólgarðaskóla síðasta vetur, einungis tíu strákar.
Þrjár stúlkur á grunnskólaaldri eru þó búsettar í sveitinni, en þær voru í 8. og 9.bekk í vetur og ganga því í skóla á Hofsósi. Af tveimur leikskólabörnum er ein stúlka, eina stúlkan sem fæðst hefur í sveitinni á um það bil tíu ára tímabili. Hún er nú á fimmta ári og byrjar því í skóla um það leiti sem hinar stúlkurnar ljúka sinni grunnskólagöngu.