Styrkur til uppsetningu náttúrulaugar á Borðeyri
Byggðaráð Húnaþings vestra hefur samþykkt styrk til stjórnar Hollvinasamtaka Borðeyrar sem óskaði er eftir fjárframlagi vegna áforma samtakanna um uppsetningu náttúrulaugar á Borðeyri.
Í fundargerð kemur fram að Byggðarráð samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2012:
„Eignfærð fjárfesting Hitaveitu Húnaþings vestra lækkar um kr. 1.250.000-. Sama fjárhæð færist á rekstur hitaveitunnar og verður greidd sem styrkur til Hollvinasamtaka Borðeyrar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við gerð náttúrulaugar,“ segir í fundargerð.