Styttist í Hólahátíð

Árleg Hólahátíð á Hólum í Hjaltadal verður haldin 12. – 14. ágúst næstkomandi.Hátíðin hefst í Auðunarstofu föstudagskvöldið 12. ágúst kl. 20:00 með opnun sýningarinnar „Krossferli að fylgja þínum“. Þar sýnir Jón Geir Ágústsson handunna krossa úr tré og sandsteini ásamt tréskurðarmyndum. Dr. Einar Sigurbjörnsson flytur erindi um táknmál krossins.

Sýningin verður opin á Hólahátíð 13. og 14. ágúst frá kl. 10 - 18.

Laugardagurinn er útivistar- og fjölskyldudagur. Þá er meðal annars í boði ratleikur fyrir alla fjölskylduna, þrjár mismunandi göngur, hlaup, grillveisla og kvöldvaka við varðeld.

Á Hólahátíð 2011 gefst gott tækifæri fyrir alla til að hreyfa sig og kynnast um leið gömlum þjóðleiðum, sem pílagrímar fóru á leið sinni heim að Hólum, taka þátt í helgihaldi og fá fylgd góðra leiðsögumanna og fararstjóra.

Þrjár göngur og eitt hlaup eru í boði laugardaginn 13. ágúst. Tvær lengri leiðir með 8-9 klukkustunda göngu um Heljardalsheiði og hins vegar frá Flugumýri að Hvammi í Hjaltadal og ein styttri helgiganga í Gvendarskál þar sem vígslubiskup messar.

Gvendarskál

Lagt af stað kl. 12:30 frá anddyri Hólaskóla og gengið í Gvendarskál þar sem sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup syngur pílagrímamessu við altari Guðmundar góða.

Klukkan 13:30 stendur ungmennafélagið Hjalti fyrir hlaupi frá Hólastað í Gvendarskál. Þar sameinast göngu- og hlaupahópar í helgihaldi við altari Guðmundar góða.

Heljardalsheiði

Gengin verður gömul þjóðleið úr Svarfaðardal yfir Heljardalsheiði. Lagt verður upp frá Atlastöðum í Svarfaðardal kl. 9.30 laugardaginn 13. ágúst en sætaferð verður þangað frá Hólum kl. 7 fyrir þau sem það kjósa. Reiknað er með átta stunda rólegri göngu. Farartálmar eru ekki á leiðinni en fólk verður aðstoðað yfir Kolbeinsdalsá og til Hóla. Nauðsynlegt er þó að vera vel útbúinn og vel skóaður.

Flugumýri – Hvammur í Hjaltadal

Mæting er við Flugumýrarkirkju kl. 7:30. Gengið upp með Hvammsgili sunnanverðu upp fyrir foss efst í gljúfrinu. Þar er farið yfir ána og síðan sem leið liggur upp í Ranghala sem er þröng skora á milli dala.

Þetta er erfiðasti hluti leiðarinnar og tekur hann að lágmarki tvær klukkustundir. Síðan er gengið eftir Ranghala og svo áfram eftir endilöngum Austurdal. Það er dálítið á fótinn en tiltölulega auðveldur kafli og lengi vel gengið eftir þokkalegum fjárgötum. Áætlaður göngutími þessa hluta er u.þ.b. 2 tímar. Þá kemur brattur en ekki mjög langur kafli upp á fjallið milli Austurdals og Hvammsdals í ríflega 1000 metra hæð.

Síðasti kafli leiðarinnar er svo niður Hvammsdal að Hvammi í Hjaltadal, þangað sem hópurinn verður sóttur á bíl.

Þetta telst nokkuð erfið ganga og áætlaður heildargöngutími er um 9 klukkustundir. Leiðsögumaður er Þórarinn Magnússon, Frostastöðum.

Þátttaka í lengri göngurnar tilkynnist til malfridur@holar.is.

Að loknum göngum verður tekið á móti pílagrímum í Hóladómkirkju með kvöldsöng kl. 18.

Póstlest kemur ríðandi heim á Hólastað kl. 16:30 og verður athöfn við Sögusetur íslenska hestsins.

Um kvöldið verður grillveisla og síðan varðeldur við grunnskólann með söng, leikjum og ýmis konar skemmtun.

Dagskrá sunnudagsins hefst með morgunsöng í Hóladómkirkju kl. 9 og síðan verður dagskrá í Auðunarstofu kl. 11 sem helguð er minningu Halldóru Árnadóttur, konu Guðbrandar Þorlákssonar biskups. Unnið hefur verið við forvörslu á legsteini Halldóru sem er jafnframt elsti legsteinn Hóladómkirkju en Halldóra lést 1585. Sólveig Jónsdóttir steinforvörður segir frá vinnunni við steininn og flutt verður erindi Sigurjóns Páls Ísakssonar um Halldóru.

Hátíðarmessa verður í Hóladómkirkju kl. 14. Sr. Dalla Þórðardóttir prófastur prédikar, Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup, Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands og fleiri þjóna fyrir altari. Kammerkór Norðurlands syngur undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Hátíðinni lýkur síðan með Hátíðarsamkomu í Dómkirkjunni kl. 16.30. Hólaræðuna flytur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson alþingismaður. Skáld Hólahátíðar er Einar Már Guðmundsson. Kammerkór Norðurlands syngur undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Fleiri fréttir