Suðvestan hvellur gengur ekki niður fyrr en seint í kvöld

Suðvestan hvellur eins og hann gerist bestur, nú eða verstur, hefur gengið yfir landið frá því seint í gærkvöld en klukkan hálf sex í morgun fór veðurhæðin við Bergsstaði í Skagafirði í 34 metra.

Spáin gerir ráð fyrir suðvestan 15-23 og talsverðri rigningu. Suðvestan 13-20 og él seint í kvöld og á morgun. Hiti 1 til 6 stig fram undir miðnætti, en síðan frost 0 til 7 stig.

Hvað færð a´vegum varðar þá er Holtavörðuheiði enn ófær en um 40 manns gistu í Reykjaskóla í nótt. Unnið er að því að ná bílum fólksins niður af Holtavörðuheiði.

Fleiri fréttir