Sumarstörf námsmanna í Húnaþingi vestra

Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum. Mynd:FE
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum. Mynd:FE

Húnaþing vestra auglýsir sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Í boði eru fjögur störf sem eru hluti af atvinnuátaki sveitarfélagsins í samstarfi við Vinnumálastofnun til þess að fjölga tímabundið störfum fyrir námsmenn vegna COVID-19. 

Störfin eru fjölbreytt og eru m.a.:

  • Umhverfisstörf sem í felast fegrun umhverfis og ásýndar sveitarfélagsins.
  • Skráning og skipulagning muna fyrir Byggðasafn Húnvetninga- og Stranda og/eða skráning hjá Bóka- og skjalasafni Húnaþings vestra.  Starfið hentar vel nemendum í safnafræði, sagnfræði, þjóðfræði eða skyldum greinum.
  • Brunavarnir Húnaþings vestra. Yfirfara og uppfæra ýmis gögn hjá Brunavörnum Húnaþings vestra og önnur tilfallandi verkefni undir leiðsögn slökkviliðsstjóra.  Starfið hentar vel nemenda í verkfærði, tæknifræði eða skyldum greinum. 

Viðkomandi þurfa að hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi, færni til þess að vinna vel í hóp. Þeir þurfa að búa yfir jákvæðni, starfsgleði, kurteisi, frumkvæði og sveigjanleika, geta unnið sjálfstætt og skipulega ásamt því að vera samviskusamir og stundvísir.

Skilyrði:

  • Umsókn þarf að fylgja staðfesting á námi milli anna, þ.e. nemendur verða að vera að koma úr námi og á leið í nám í haust. Þá þurfa að liggja fyrir upplýsingar um menntun og fyrri störf.
  • Ráðningartími er tveir mánuðir og er miðað við að tímabilið sé 1. júní - 31. ágúst.
  • Námsmenn þurfa að vera 18 ára á árinu.
  • Laun eru aldrei lægri en kjarasamningar segja til um vegna viðkomandi starfs.
  • Um ráðningar vegna vinnumarkaðsátaks gilda sömu reglur og um ráðningar starfsmanna sveitarfélaga.
  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2020. Umsóknir skulu berast á netfangið rjona@hunathing.is. Frekari upplýsingar um störfin má nálgast hjá sveitarstjóra á netfanginu rjona@hunathing.is eða umhverfisstjóra á netfanginu ina@hunathing.is eða í síma 455 2400.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir