Svekkjandi jafntefli í Ólafsvík
Þrátt fyrir að stelpurnar í Tindastól væri mun sterkari sterkari aðilinn í leik þeirra gegn Víkingi Ólafsvík sl. laugardag náðu þær ekki að setja boltann í netið nema einu sinni en gegn gangi leiksins og eftir slæm varnarmistök fengu þær á sig eitt mark alveg í blálokin. Á Tindastóll.is segir að fyrstu 30 mínúturnar hafi leikurinn að mestu farið fram á vallarhelmingi Víkings.
Stólarnir voru ógnandi framá við og náði liðið hvað eftir annað upp mjög góðu spili þar sem kantarnir voru vel notaðir og áttu Guðný og Carolyn fín hlaup og ágætar fyrirgjafir en ekki náðu stelpurnar að nýta þau færi sem fengust.
„Það segir nokkuð um hversu vel Tindastóll var að spila fyrstu mínúturnar að fyrsta skot Víkings á mark kom ekki fyrr en á 24. mínútu. Víkingur átt svo hættulegt skot á 28 mín. sem Bryndís varði vel. Vörnin var sterk í fyrri hálfleik og þær hættur sem sköpuðust voru langskot utan af velli sem Bryndís var ekki í vandræðum með, en Tindastólsstúlkur áttu mun hættulegri færi en inn vildi boltinn ekki,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka þurfti Guðný Þóra Guðnadóttir að yfirgefa völlinn eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg og var hún flutt á sjúkrahús til öryggis enda kom í ljós að hún hafði fengið heilahristing en verður vonandi klár fyrir næsta leik.
„Eftir þetta jafnaðist leikurinn og síðustu 10 mín. ná Víkingar pressu á okkur og áttum við í erfileikum að losa hana. Gerðar voru 5 skiptingar og virðist sem leikur Tindastóls hafi riðlast við það og á 91. mín. þá fengum stelpurnar kjaftshöggið og í fyrsta skipti í leiknum kom Víkingur boltanum inní teig hjá okkur eftir varnarmistök hægra megin og eftir klafs inní teig ná þær að pota boltanum í netið og jafna. Gífurleg vonbrigði eftir ágætan leik hjá stelpunum okkar og sem voru betri aðilinn stærsta hluta leiksins.“
Næsti leikur liðsins er við Fylki á útivelli í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Fyrsti heimaleikur liðsins verður svo 15. júní gegn Fram.
Sjá nánari lýsingu á Tindastóll.is.