Tane Spasev kemur ekki
Makedónski körfuknattleiksþjálfarinn Tane Spasev, sem körfuknattleiksdeild Tindastóls var búin að semja við fyrir næsta tímabil, mun ekki koma þar sem honum hefur boðist starf í Sýrlandi sem hann getur ekki hafnað.
Á vef Tindastóls er greint frá því að Tane hafi farið til Sýrlands í vor þar sem hann hugðist starfa hjá sýrlenska körfuknattleikssambandinu í sumar, en hlutirnir verkuðust þannig að honum var boðinn heilsárssamningur fyrir laun sem eru margföld á við það sem honum buðust hér. Var honum boðin staða yfirþjálfara yngri landsliða Sýrlands auk aðstoðarþjálfarastöðu A-landsliðs sem nú undirbýr m.a. þátttöku í Asíu-leikunum.
Körfuknattleiksdeildinni var ekki stætt á öðru í ljósi aðstæðnanna en að gefa Tane lausan, þrátt fyrir undirskrifaðan samning, þar sem það væri í raun fásinna fyrir hann að gefa þetta starf frá sér sem um ræðir í Sýrlandi, eins og segir á Tindastólsvefnum.