Tap hjá 10. fl. drengja gegn Breiðablik b

Ljósmyndari: Hjalti Vignir Sævaldsson
Ljósmyndari: Hjalti Vignir Sævaldsson

Á sunnudaginn mættust Tindastóll og Breiðablik b í 10. flokki drengja og því miður er lítið hægt að segja um þennan leik nema að okkar strákar náðu sér aldrei á strik.

Það má því með sanni segja að þetta var þeirra versti leikur í vetur, bæði í vörn og sókn. Staðan í hálfleik var 19-46 og lokatölur urðu 51-86. Þeir sitja nú í 3. sæti af sex liðum í sínum riðli og hafa unnið átta leiki og tapað sex. Næsti leikur átti að vera á móti Hetti þann 17. mars hér í Síkinu en honum hefur verið frestað þar sem strákarnir verða að leiksýna leikrit, Aladdín, á sama tíma hér í Króksbíói.

7-21 eftir 1 leikhluta

19-46 í hálfleik

33-60 eftir 3 leikhluta

51-86 leik lokið

/ Hjalti Vignir Sævaldsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir