Team Tengill á fullri ferðinni
Team Tengill hefur lagt af stað í WOW Cyclothon hjólreiðakeppnina þar sem hjólað er í kringum Ísland. Liðið er nú statt við Borgarnes en hægt er að fylgjast með för liðsins á Facebook þar sem settar eru inn reglulegar stöðuuppfærslur. Liðið er einnig með Snap chat (tengillwowcycle) og hægt að horfa á keppnina á Stöð 2 Sport. Team Tengill er í flokki B-liða og samanstendur af starfsmönnum Tengils á Sauðárkróki og Hvammstanga.
Liðið keppir í boðsveitaflokki en þá þarf að minnsta kosti einn hjólreiðamaður að vera hjólandi í einu á keppnisleiðinni. Síðan þarf að fylgja ströngum reglum varðandi skiptingu þegar næsti hjólreiðamaður tekur við. Keppnisleiðin er þjóðvegur 1 með nokkrum undantekningum, samtals 1.358 km.
Team Tengill hefur nú safnað 116.000 kr. en það er enn hægt að heita á liðið, á þessari slóð. Hér fylgst með ferð liðanna á korti.
„Núna er rétt að minna á áheitasöfnunina. Þetta er sára einfalt, bara senda SMS á eftirfarandi númer með textanum 1024.
- 907 1501 fyrir 1.000 kall
- 907 1503 fyrir 3.000 kall
- 907 1505 fyrir 5.000 kall
- 907 1510 fyrir 10.000 kall
Koma svo!!!!!“ segir á facebook síðu Team Tengils rétt í þessu.
Hér er tafla sem sýnir hvenær áætlað er að liðin séu væntanleg á hverjum viðkomustað.