Team Tengill á síðustu metrunum

Team Tengill er nú á lokasprettinum í  WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni þar sem hjólað er með boðsveitarformi hringinn í kringum Ísland og eru aðeins 90 km eftir. Liðið er að renna í gegnum Selfoss á meðalhraðanum 48 km/klst. Tengilsmenn hefur nú verið á ferðinni á annan sólarhring.

Keppnin er æsispennandi. Team Tengill keppir í B flokki og eru liðin farin að tínast í mark hvert á eftir öðru, en það er við Krýsuvíkurveg, á sama stað og keppnin hóf göngu sína.

Team Tengill hefur nú safnað 206.001 kr. og segja Tengilsmenn keppnin ekki síst felast í því að safna sem mestu fé fyrir gott málefni sem er uppbygging á Batamiðstöð á geðsviði Landspítalans á Kleppi.

Hægt er að heita á liðið á þessari slóð eða senda SMS á eftirfarandi númer með textanum 1024;

  • 907 1501 fyrir 1.000 kall
  • 907 1503 fyrir 3.000 kall
  • 907 1505 fyrir 5.000 kall
  • 907 1510 fyrir 10.000 kall

Hér fylgst með ferð liðanna á korti. Hægt er að fylgjast með för liðsins á Facebook þar sem settar eru inn reglulegar stöðuuppfærslur. Þar eru m.a. sá myndbönd sem sýna stemninguna í keppninni og til marks um þá hörku og elju sem liðsmennirnir búa yfir til að ná settu marki.

Fleiri fréttir