Telur eðlilegt að skoða yfirtöku sveitarfélagsins á HS
Mikil óánægja er meðal landsmanna, ekki síst Skagfirðinga, um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að sameina sjúkrastofnanir undir einn hatt í hverju heilbrigðisumdæmi. Vestmannaeyingar ætla að kanna kosti og galla þess að Vestmannaeyjabær reki, samkvæmt samningi við ríkið, heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum. Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðaráðs Svf. Skagafjarðar útilokar ekki yfirtöku sveitarfélagsins á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki.
-Ég tel eðlilegt að sveitarfélagið skoði þá möguleika að yfirtaka rekstur stofnunarinnar. Ástæðan er það fyrirkomulag sem gengið er útfrá í nýjum fjárlögum gengur ekki upp, það er ljóst, segir Stefán. Hugmyndir þess efnis að heilsugæsla og öldrunarþjónusta verði færð frá ríki til sveitarfélaga eru ekki nýjar af nálinni og segir Stefán að búast megi við því að þær verði að veruleika á næstu árum. Telur hann í því sambandi mun gáfulegra að taka við rekstri stofnunarinnar í heilu lagi.