Þjálfarar fullsaddir á aðstöðuleysi á Sauðárkróki

Á fundi sem formaður knattspyrnudeildar, framkvæmdastjóri og tengiliður við barna- og unglingaráð áttu með þjálfurum yngri flokka Tindastóls í knattspyrnu kom fram að þeir íhugi alvarlega að halda ekki áfram störfum sínum fyrir deildina.  Allt vetrarstarf deildarinnar er því í töluverðu uppnámi og alls óvíst um framhaldið.  -Ef þetta fer á versta veg mun það að sjálfsögðu hafa áhrif á ekki bara vetrarstarfið heldur einnig allt starf deildarinnar allt árið um kring, segir Ómar Bragi Stefánsson formaður knattspyrnudeildar Tindastóls.

Ástæða þessa alls er að þjálfarar hafa fengið sig fullsadda af aðstöðuleysi sem knattspyrnuiðkendum stendur til boða á Sauðárkróki, og þá sérstaklega yfir vetrarmánuðina.

-Aðstaða sú sem í boði hefur verið er litli sparkvöllurinn við Árskóla en sá völlur er jafnframt minnsti sparkvöllurinn í Skagafirði. Töluvert stærri vellir eru á Hofsósi, Hólum og í Varmahlíð þó svo að iðkendur þar séu margfalt færri. Um þennan völl er illa hugsað og lýsing afskaplega takmörkuð. Íþróttahúsið á Sauðárkróki er svo umsetið að knattspyrnudeildin fær úthlutað fáum og „vondum“ tímum og þeim fer jafnframt fækkandi með hverju árinu. Ekki stendur grasæfingasvæðið deildinni til afnota frá því á haustdögum og þar til í júníbyrjun en fyrir utan það hefur svæðinu verið afar illa haldið við og getur verið hættulegt iðkendum, segir Ómar.

Þjálfarar deildarinnar lögðu áherslu á það á fundinum að börn og unglingar sætu ekki við sama borð í þessu sveitarfélagi samanborðið við önnur af sömu stærðargráðu, hvað knattspyrnuiðkun varðar. Möguleikar þeirra til að ná árangri eru mjög takmarkaðir og þjálfurum finnst hálfgert tilgangsleysi vera í allri þeirra vinnu.

-Stjórn knattspyrnudeildarinnar getur ekki annað en tekið undir með þjálfurum að aðstaðan sé algerlega óviðunandi og við það verði ekki lengur unað.  Börn okkar og unglingar eiga betra skilið.  Það má einnig benda á að leikmenn meistaraflokkanna hafa á undanförnum árum margir hverjir flust suður á haustin til að komast í betri æfingaaðstöðu sem þar er vissulega að finna.

Knattspyrnudeildin er fjölmennasta deildin innan vébanda Tindastóls en býr klárlega við lélegustu aðstöðuna.  Knattspyrnan er heilsársíþrótt og þarf að hafa aðstöðu þannig að iðkendur okkar stórir sem smáir geti iðkað fótbolta allt árið um kring á samkeppnisgrundvelli.  Við þessu verður að bregðast, segir Ómar.

Fleiri fréttir