Þjóðleikhúsið velur Fjölnet
feykir.is
Skagafjörður
27.04.2019
kl. 11.13
Þjóðleikhúsið hefur valið Fjölnet til að annast rekstur tölvukerfa stofnunarinnar en um er að ræða alrekstur tölvukerfa og þjónustu við starfsmenn. Þjóðleikhúsið hefur verið leiðandi stofnun á sviði leiklistar á Íslandi allt frá opnun þess árið 1950.
Það sýnir fjölbreytt úrval sviðsverka sem er ætlað að höfða til ólíkra áhorfendahópa, með það að markmiði að efla og glæða áhuga landsmanna á list leikhússins og auðga leikhúsmenningu í landinu. Í Þjóðleikhúsinu eru settar á svið framúrskarandi leiksýningar sem skemmta áhorfendum, ögra þeim, vekja þá til umhugsunar og veita þeim innblástur.
Fjölnet býður Þjóðleikhúsið velkomið í hóp ánægðra viðskiptavina.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.