Þórhildur syngur á skírdagskvöldi í Sauðárkrókskirkju

Þann 17. apríl, að kvöldi skírdags, er boðið til tónleika í Sauðárkrókskirkju kl. 20:00. Að þessu sinni verður það hin frábæra söngkona, Þórhildur Örvarsdóttir, sem mun gleðja kirkjugesti með söng sínum. Hún kemur frá Akureyri, þar sem hún er söngkennari við Tónlistarskóla Akureyrar og Tónræktina. 

Þórhildur hefur verið virk í sönglífi norðan heiða og víðar til margra ára. Efnisskráin er fjölbreytt en Þórhildur er jafnvíg á klassík og popptónlist.

Í hléi verður minnst atburða skírdagskvöld með altarisgöngu þar sem brauð frá Róbert bakara verður blessað ásamt suðrænum vínberjum. Aðgangur er ókeypis eins og öll velkomin til notalegrar stundar í kirkjunni.

Fleiri fréttir