Þorkell Zakaríasson 100 ára í dag

Þorkell Zakaríasson, kenndur við Brandagil í Hrútafirði, er 100 ára í dag. Í grein sem Karl Sigurgeirsson á Hvammstanga skrifar í Morgunblaðið í dag kemur fram að Þorkell sé nú búsettur á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga, ótrúlega ern, minnugur og með góða heyrn en sjónin sé að mestu farin.

Þorkels kvæntist Jóhönnu Sigurðardóttur frá Neðra-Vatnshorni. Eiga þau soninn Sigurð og þrjú barna- og barnabarnabörn. Þau hófu búskap í Hveravík á Reykjatanga 1954 en fluttu þaðan að Brandagili. Þorkell stundaði vegavinnu um áratuga skeið og var lengi með eigin vörubílaútgerð. Hann er mikil ljóða- og söngunnandi og í viðtalinu kemur fram að hann syngi enn í dag með félögum sínum.

Fleiri fréttir