Þorrabingó Kvenfélagsins Bjarkar
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
26.01.2014
kl. 12.17
Þorrabingó Kvenfélagsins Bjarkar verður haldið í dag, sunnudaginn 26. janúar kl. 15, í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Fram kemur í nýjasta eintaki Sjónaukans að þar muni 10. bekkur Grunnskóla Húnaþings vestra vera með sjoppu á staðnum til styrktar útskriftarferð sinni.
„Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir loks í auglýsingunni.