Þrenn verðlaun til UMSS
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fyrir 11 – 14 ára, fór fram í Hafnarfirði helgina 22. – 23. júní. Keppendur voru 240 frá 19 félögum og samböndum. Frá UMSS voru 6 keppendur, sem stóðu sig mjög vel, og unnu þrenn verðlaun á mótinu.
Verðlaunahafar UMSS:
Berglind Gunnarsdóttir (12): 2. sæti í kúluvarpi.
Guðný Rúna Vésteinsdóttir (11): 3. sæti í kúluvarpi.
Vala Rún Stefánsdóttir (14): 3. sæti í spjótkasti.
Í samanlagðri stigakeppni mótsins sigraði lið HSK/Selfoss með 682 stig, ÍR varð í 2. sæti með 664 stig og FH í 3. sæti með 581. Lið UMSS varð í 11. sæti með 61,5 stig. Tindastóll.is segir frá þessu
Hér er hægt að sjá öll úrslitin.