Þrettán sóttu um störf hjá Minjastofnun

Frá Sauðárkróki. Minjastofnun Íslands er til húsa í Villa Nova, Aðalgötu 23.
Frá Sauðárkróki. Minjastofnun Íslands er til húsa í Villa Nova, Aðalgötu 23.

Minjastofnun Íslands auglýsti tvær stöður lausar í starfstöð sinni á Sauðárkróki á dögunum, annars vegar starf arkiteksts og hins vegar fornleifafræðings. Þá var staða fornleifafræðings við Minjastofnun í Reykjavík jafnframt auglýst laus til umsóknar. Umsóknarfrestur rann út þann 1. febrúar sl. en samkvæmt vef Minjastofnunar bárust 13 umsóknir um störfin þrjú og er verið að vinna úr þeim.  

Eftirtaldir aðilar sóttu um störfin:

Starf arkitekts:

  • Magnús Freyr Gíslason 
  • Sigurður Pálmi Ásbergsson

Störf fornleifafræðinga (hér verður ekki sundurliðað í starf í Reykjavík og á Sauðárkróki þar sem sumir sóttu um báðar stöðurnar):

  • Arnar Logi Björnsson
  • Ásta Hermannsdóttir
  • Eva Kristín Dal
  • Guðmundur Stefán Sigurðarson
  • Inga Sóley Kristjönudóttir 
  • Jordan Campbell
  • Kristján Mímisson
  • Lilja Laufey Davíðsdóttir
  • Nikola Trbojevié
  • Sigurjóna Guðnadóttir
  • Sædís Gunnarsdóttir

 

Fleiri fréttir